Þurftum aðeins að viðra okkur og kíktum yfir Svínaskarð, þ.e. þjóðleiðina frá Esjudalnum yfir Svínaskarð í Svínadal. Leiðin liggur milli Móskarðshnjúka og Skálafells. Fórum þetta 24. febrúar í súper flottu veðri. Leiðin upp skarðið var nokkuð greiðfær og snjór lítill. Þegar við héldum austur niður skarðið var meira um klaka og snjó og þurfti að fara mjög varlega síðstu 200 metrana niður að gilinu. Þar lentum við svo í miklum vandræðum því heljarinnar skafl sá til þess að góðar líkur voru á að velta hjólunum niður í gil vegna hliðarhalla. Brugðu jaxlarnir þá á það ráð að búa til nýjan veg í hlíðina og mokuðum við á ca. 15 metra kafla inní hlíðina til að tryggja okkur. Það gekk svo allt vel og við komumst inní Svínadal en þar er leiðin um verri heldur en vestan megin og mikið grjót á slóðanum.
Í bakaleiðinni ákváðum við að fara á Skálafell og þutum þar upp í fínu færi og skoðuðum leiðina sem við höfðum farið um Svínaskarð ofan frá.
Kíkið á myndir hér.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 athugasemdir:
Sendu inn athugasemd